Hahaha.. þetta minnir mig á ..

.. Þegar ég flaug einu sinni til Ísafjarðar. 

 flugvélin fór á loft og allt gekk vel, svo kemur flugstjórinn í hátalarana á miðri leið og segir hvað við erum að fljúga hátt og hvernig veðrið er og svona.   Nema þegar hann endurtekur rulluna á Ensku þá nefnir hann áfangastaðinn sem Egilstaði en ekki Ísafjörð,   og það var æðislega fyndið að sjá alla farþegana verða mjög undrandi,  það vissi ekki hvort átti að fara til Ísafjarðar eða Egilsstaða. Þrátt fyrir það þá minntist enginn á þetta og allir sátu bara sem fastast í stólunum sínum og þögðu, þótt þeir væru greinilega nokkuð órótt.

Hef nú flogið þessa leið nokkrum sinnum sjálfur svo ég vissi alveg að við værum á réttri leið (Ísafjörð) miðað við landmerkin á jörðu niðri Grin


mbl.is Flugstjóri vissi ekki hvert hann var að fara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er nú bara eitt fyndið í þessari frásögn. Að þegar flugstjórinn hafði orðið tvísaga um ákvöðunarstað "sátu allir sem fastast í stólunum sínum og þögðu". Hvað áttu þeir að gera. Standa upp og og ganga út til að taka næstu vél eða rútu. Ætli engum hafi dottið í hug að kalla í flugfreyjuna til að fá að vita hið sanna.  Ég heyrði góða sögu um konu sem stökk upp í vél á Egilsstaðflugvelli á leið til Reykjavíkur, en tvær vélar voru á vellinum í það skiptið. Þegar vélin var um það bil að aka af stað kom flugfreyjan og spurði. Ert þú á leið til Reykjavíkur. Já sagði konan. Það er hin vélin, sagði flugfreyjan , en þú verður að vera snögg.

Sigrún 19.2.2009 kl. 11:25

2 Smámynd: Jóhannes H. Laxdal

Hefði nú búist við því að fólk hefði nú kallað í flugfreyjuna og fengið að vita hvort flugvélin væri nú ekki örugglega á leið til Ísafjarðar frekar en að þurfa að stressa sig á því í 20 mín hvort þau myndu lenda í óþægindum við að hafa tekið vitlaust flug.

Jóhannes H. Laxdal, 19.2.2009 kl. 11:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jóhannes H. Laxdal

Hr. Laxdal

Jóhannes H. Laxdal
Jóhannes H. Laxdal

Ég segi það bara beint út og ekkert "Political correctness" vesen.

Ekki vera neitt hrædd við að hafa rangt fyrir ykkur í lífinu, ég er það ekki og þannig á það að vera.
"The only stupid question is the one not asked"

Enginn er fullkominn,  svo sannarlega ekki ég.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband