27.8.2009 | 12:28
Megum við þá senda ESB reikninginn ?
Næstum öll ljósastæðin heima hjá mér, foreldrum mínum og fleirum sem ég þekki eru "gamaldags" og geta ekki rúmað Sparperur í núverandi mynd. Tala nú ekki um alla lampana á svæðinu.
Ef það á að banna okkur að kaupa venjulegar ljósaperur, þá neyðumst við til þess að kaupa ný ljósastæði og nýja lampa með tilheyrandi kostnaði.
Megum við þá senda ESB reikninginn fyrir þeim kostnaði?
Örlög glóperunnar á Íslandi ráðast senn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Jóhannes H. Laxdal
Tenglar
Mínir tenglar
- Vefsíðan Mín Vefsíðan Mín
- Olíuverð á Íslandi Vefsíða sem tekur saman helstu upplýsingar er viðkemur olíuverði á Íslandi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hefurðu skoðað sparperurnar nýlega? Þær fást nú í nákvæmlega sömu stærðum og formum og gömlu glóperurnar.
Einar Þór, 27.8.2009 kl. 12:39
Eru nú nokkrar vikur síðan ég fór síðast, og þá gat ég ekki fundið neinar sem voru svipaðar og gömlu góðu glóperurnar sem endast ekkert.
Jóhannes H. Laxdal, 27.8.2009 kl. 12:43
Prófaðu IKEA
Magnús Björnsson, 27.8.2009 kl. 12:45
Fór einmitt þangað síðast .. ætli maður kíki ekki þangað aftur fljótlega til að athuga úrvalið.
Jóhannes H. Laxdal, 27.8.2009 kl. 13:12
En hvað með þá sem nota ljósdimma á glóperur? Venjulegur ljósdimmir virkar á glóperur og halógenperur, en ekki á sparperur líkar og þið vísið til. Til að dimma sparperu þarf sérstaklega búinn lampa, sem kostar líklega 4-5 sinnum meira en hefðbundinn lampi. Heilmikill sparnaður það....
Guðjón Sig. Guðjónsson 27.8.2009 kl. 17:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.