Meira vælið í Arion banka

 Landsbankinn er bara að gera það sem allir bankarnir áttu að gera þegar þeir fengu allt Lánasafnið frá gömlu bönkunum flutt yfir á gríðarlegum afslætti.  Láta eitthvað af þeim tilfærslum ganga til viðskiptavina (skuldara því þetta eru endurgreiðslur á vöxtum og gjöldum sem skuldarar hafa greitt) viðkomandi banka fyrst að önnur úrræði fyrir skuldara gengu jafn skammt og þau gerðu sbr þessa vonlausu 110% leið. Eina sem þetta mál ætti að snúast um er af hverju Arion banki og Íslandsbanki hafa ekki komið með einhver sambærileg úrræði sem nýta svigrúmið sem myndaðist þegar þeirra lánasöfn voru færð yfir með afslætti.  Það getur enginn farið að segja mér að þessir bankar "hafi ekki efni" á því.


mbl.is Arion kærir Landsbankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki Samkvæmt Infowars

http://www.infowars.com/is-the-imminent-liberation-of-libya-propaganda/

Viðtal við sjálfstæða fréttakonu sem er í Tripoli.

En maður getur ekki gert annað en beðið og séð hvort Trípoli fellur í kvöld eða ekki.


mbl.is NATO: Stjórnin er að falla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1999 voru að hringja, þeir vilja fá tæknimanninn sinn aftur.

"Gæða" þýðing á þessari sorp WSJ frétt. En fyrst þá skulum við koma að einu mikilvægara en sorp fréttum enskra blaða.

"Major websites such as MSN.com and Hulu.com have been tracking people's online activities [...]"

Þýðir ekki 

" Stóru vefsíðufyrirtækin MSN.com og Hulu.com nota nýja tækni til að fylgjast með fólki á netinu. [...]"

Takið eftir "Such As"

Þessi þýðing fengi svona 3 eða 4 í 8. bekkjar enskutíma.  Réttari þýðing væri :

"Stórar vefsíður einsog MSN.com og Hulu.com hafa verið að nota nýja tækni til að fylgjast með fólki á netinu [...]".

Því það eru ekki bara MSN og Hulu sem nota þetta,  heldur er aragrúi vefsíðna sem notar supercookies.

Og af hverju sorp frétt? og af hverju er ég að tala um 1999 í titlinum á þessu bloggi..  Jú,  því þessi "nýja" tækni sem er verið að tala um í þessari WSJ frétt hefur verið til staðar í 12 ár ef ekki lengur og á rætur sínar að rekja til HTTP 1.1 staðalsins sem kom einmitt 1999 ef minnið bregst mér ekki.  Þessi ofurkaka byggist á því að geyma gögn í Flash skrám,  ofurkakan er ekki bara notuð til að geyma persónuupplýsingar heldur er hellingur af öðrum venjulegum ástæðum (semsagt ekki vondum persónunjósna ástæðum) til þess að nota þetta, sem dæmi eru vefleikir sem þurfa að geyma upplýsingar í vafranum.  Ofurkökur eru betri en venjulegar kökur að því leiti að það er hægt að geyma meiri gögn í þessum ofurkökum heldur en venjulegum kökum.  Það er líka auðvelt að komast hjá eða loka á ofurkökurnar,  í Firefox er hægt að setja upp viðbætur sem heita NoScript og FlashBlock til að loka á scriptur og flash :)

 

Upprunalega fréttin,  ef þeir skyldu nú breyta þessu :)

Stóru vefsíðufyrirtækin MSN.com og Hulu.com nota nýja tækni til að fylgjast með fólki á netinu. Það er nánast ómögulegt fyrir netnotendur að vita að fylgst sé með þeim.

Þessi nýja tækni er lögleg en er margslungnari og margþættari en tæknin sem liggur bakvið hinna hefðbundna skráa „cookies“ sem vefsíður koma fyrir á tölvum notenda til að rekja virkni þeirra á netinu. 

Hulu.com og MSN.com eru að koma fyrir svokölluðum ofurskráum „supercookies“ í tölvum notenda sem geta endurskapað netsögu fólks eftir að það hefur eytt hinum venjulegum skrám „cookies“ samkvæmt upplýsingum frá rannsakendum  Stanford háskóla og Kaliforníu háskóla í Berkeley.

 


mbl.is Ný tækni til að fylgjast með fólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Latir foreldrar sem vilja fría sig ábyrgð.

Ríkissaksóknari Ástralíu, Robert McClelland, segir foreldra hafa kvartað yfir því að aldurstakmarkið sé of lágt og að börnin séu að birta efni á síðum sínum sem gætu skaðað atvinnumöguleika þeirra í framtíðinni.

  Það er foreldranna að fylgjast með hvað krakkarnir þeirra eru að gera á internetinu og taka fram fyrir hendur þeirra ef þau eru að gera eitthvað af sér,  einsog að pósta einhverju rugli á síðuna sína, enda eru þau forráðamenn barnanna.  Þau hljóta að vera óskaplega slappir forráðamenn ef þau ráða ekki við þetta tiltölulega einfalda verkefni.  Það er ekki í verkahring Facebook að ákveða hvaða efni einstakir notendur mega setja inná síðuna sína.

  En þetta er ekki fyrsta ruglið sem reynt er í Ástralíu,  stundum efast ég um að Common Sense genið sé til staðar þarna.


mbl.is Ástralir íhuga Facebook 18+
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Olíuverð á Íslandi

Fyrir rúmum 2 mánuðum lét ég verða af því að byrja að vinna í hugdettu sem hafði verið fljótandi um í kollinum á mér í nokkra mánuði.  Einföld hugmynd,  safna saman á einn stað öllum upplýsingum er viðkemur bensínverði á Íslandi.  Hægt er að sjá afrakstur af 2 mánaða dundi á http://oil.laxdal.org

"Þá verður eingreiðslum sem SA höfðu boðið breytt í varanlegar launahækkanir"

Er fólk að gleyma þessu ? Fólk virðist gleyma sér yfir þessu 1% og er að því virðist sármóðgað,  en þá gleymist að SA bauð að allar eingreiðslurnar yrðu gerðar að varanlegum launahækkunum, en einsog flestir sem hafa lokið grunnskólastærðfræði vita þá kemur launahækkun í fastri tölu betur út fyrir þá lægst launuðu.  Hækkun í prósentum er sérsniðið til að þeir sem eru með hæstu launin komi sem best út. T.d. myndi þessi 13% hækkun skila ~200 þúsund í vasann hans Gylfa en bara ~20 þúsund í vasa fólks á lágmarkslaunum.
Þá verður eingreiðslum sem SA höfðu boðið breytt í varanlegar launahækkanir sem munu haldast, jafnvel þótt fyrirvarar sem gerðir eru vegna aðkomu ríkisvaldsins virkist og samningar renni út 1. febrúar á næsta ári

 Hvað voru þeir að tala um háar eingreiðslur?.  Var ekki talað um 50 þúsund kall þarna fyrripartinn í Apríl? Hefur það eitthvað breyst? ef við göngum útfrá því að þetta sé 50 þúsund króna launahækkun auk 13% þá fyrir mann með 200 þúsund í laun erum við að tala um 25% hækkun + 13 % yfir 3 ár .. samtals 38%. fyrir mann á lágmarkslaunum (sem AFAIK er 157 þúsund samkvæmt google) þá er þetta ~45% hækkun sem verður að teljast góð launahækkun.  En til samanburðar þá myndi þetta vera ~16,3% hækkun fyrir Gylfa 13%+~3.3%.

Fyrir þá lægst launuðu þá koma svona fastar launahækkanir þeim betur.  Enda er augljóst að 13% er minna af 200 þúsund kalli en af 500 þúsund. ASÍ ættu að einbeita sér að fastri launahækkun í krónum í staðinn fyrir þessi prósent, en slíkt myndi koma fólki í valdastöðum innan ASÍ og Aðildarfélaganna verr og því er ólíklegt að þeir munu snúa við fókusnum.

Svo verður fólk að vera raunsætt,  allt gott og gilt að vilja hækka lágmarkslaunin til samræmis við þetta nýja mat en það verður aldrei gert á einu bretti.  Að fara of geyst fram myndi dýpka kreppuna með því að bæta gjaldþrotum smærri fyrirtækja við gjaldþrot einstaklinga.  Tala nú ekki um þá verðhækkun á  vöru og þjónustu sem mun svo aftur bitna á neytendum og á endanum myndum við standa í sömu sporum þar sem viðmið fyrir lágmarkslaun yrðu svo miklu hærri en núverandi (hækkuð) lágmarkslaun.


mbl.is Bjóða 1% til viðbótar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona í tilefni dagsins

 

Nei eða já - af eða á? Erfitt er oft að finna svarið.

 


Fyndið

Fyndið ..  Ofbeldisfullir leikir auka nefnilega ekki ofbeldisfulla glæpi..

Ofbeldisfullir einstaklingar verða ofbeldisfullir með eða án tölvuleikja.

Violent Crime and Video Games


mbl.is Tekist á um bann á tölvuleikjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef þetta er þar sem ég held að þetta sé í hfj.

þá keyra flest allir þarna hratt,

Bein braut, ágætlega breiður vegur.

Held ég hafi ekki séð nema örfáar hræður keyra þarna á "réttum" hraða..  restin fer öll uppí 70-80, og sumir hraðar.


mbl.is Hraðakstur í Hafnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Jóhannes H. Laxdal

Hr. Laxdal

Jóhannes H. Laxdal
Jóhannes H. Laxdal

Ég segi það bara beint út og ekkert "Political correctness" vesen.

Ekki vera neitt hrædd við að hafa rangt fyrir ykkur í lífinu, ég er það ekki og þannig á það að vera.
"The only stupid question is the one not asked"

Enginn er fullkominn,  svo sannarlega ekki ég.

Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 16266

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband